Umbætur á ákvæðum um úthlutun þingsæta

Authors

  • Þorkell Helgason

DOI:

https://doi.org/10.13177/irpa.b.2014.10.2.3

Abstract

Reifaðar eru hugmyndir um breytingar á þremur lykilatriðum við úthlutun þingsæta í kjölfar kosninga til Alþingis. Allar rúmast hugmyndirnar innan ramma núgildandi stjórnarskrár og væri því unnt að innleiða þær með breytingum á kosningalögum einum. Fjallað verður um það hvernig tryggja megi fullan jöfnuð milli þingflokka en á því varð misbrestur í kosningunum 2013. Um leið er vísað til kröfu margra, m.a. alþjóðastofnana, um að jafna þurfi vægi atkvæða eftir búsetu og bent á leiðir til þess. Að lokum er lýst því stærðfræðilega vandamáli sem felst í útdeilingu jöfnunarsæta. Viðfangsefnið er í flokki erfiðra fléttufræðilegra vandamála. Stungið er upp á nýrri aðferð sem tilbrigði við núgildandi lög.

Author Biography

Þorkell Helgason

Fyrrverandi prófessor i stærðfræði.

Published

2014-12-15

How to Cite

Helgason, Þorkell. (2014). Umbætur á ákvæðum um úthlutun þingsæta. Icelandic Review of Politics & Administration, 10(2), 1–28. https://doi.org/10.13177/irpa.b.2014.10.2.3

Issue

Section

Articles and speeches