Stjórnlagaþing, fjölmiðlar og frambjóðendur. Rannsókn á kynningarmálum frambjóðenda fyrir stjórnlagaþingskosningar 2010
DOI:
https://doi.org/10.13177/irpa.b.2010.6.2.2Abstract
Hefðbundnir fjölmiðlar voru ekki í aðalhlutverki við kynningu og umfjöllun um einstaka frambjóðendur í kosningunum til stjórnlagaþings í nóvember 2010. Persónukjör með landið sem eitt kjördæmi þar sem yfir 500 frambjóðendur voru í kjöri er fyrirkomulag sem ekki hentar verklagi og vinnubrögðum hefðbundinna miðla og því er lýðræðislegt hlutverk þeirra takmarkað að þessu leyti. Í greininni er greint frá niðurstöðum könnunar meðal frambjóðenda til þingsins á því hvernig þeir höguðu kynningarmálum sínum og kemur í ljós að netmiðlar voru í aðalhlutverki, sérstaklega samfélagsvefurinn Facebook og miðlar sem ekki teljast til stóru hefðbundnu miðlanna. Í gegnum þessa miðla reyndu frambjóðendur að koma sér og stefnumálum sínum á framfæri inn í almannarými þjóðfélagsumræðunnar. Lítil sem engin tilraun var gerð meðal frambjóðenda til að kaupa sér leið inn í almannarýmið með auglýsingum.Downloads
Published
2010-12-15
How to Cite
Guðmundsson, B. (2010). Stjórnlagaþing, fjölmiðlar og frambjóðendur. Rannsókn á kynningarmálum frambjóðenda fyrir stjórnlagaþingskosningar 2010 . Icelandic Review of Politics & Administration, 6(2). https://doi.org/10.13177/irpa.b.2010.6.2.2
Issue
Section
Articles and speeches
License
This work is licensed under a Creative Commons Attribution 4.0 License.