Kosningadagar 2007. Minningar - greining - mat - uppgjör

Authors

  • Jón Sigurðsson

DOI:

https://doi.org/10.13177/irpa.b.2010.6.1.1

Abstract

Þessi ritsmíð er tilraun til að draga saman nokkra meginþætti í stöðu og málstað Framsóknarmanna í Alþingiskosningunum 2007. Um leið er greinin persónulegar minningar, mat og uppgjör höfundar sem var um stutt skeið formaður Framsóknarflokksins, ráðherra og frambjóðandi í Reykjavíkurkjördæmi norður, en náði ekki kjöri og hvarf frá stjórnmálastörfum. Höfundur leitast við að draga fram nokkur mikilvæg atriði til að fylla út í almenna mynd af íslenskum stjórnmálum á þessum tíma, með sérstakri áherslu á stöðu Framsóknarmanna og sjónarmið þeirra. Lýst er viðhorfum og stöðu mála innan flokksins og nefndar nokkrar hugsanlegar meginástæður fyrir stöðunni sem upp var komin. Raktir eru nokkrir málefnaflokkar sem hátt bar í kosningunum og lýst afstöðu til þeirra. Í síðara hluta greinarinnar er vikið að eftirleik kosninganna, viðræðum um nýja ríkisstjórn og straumum sem léku um forystu Framsóknarflokksins eftir versta afhroð í sögu hans. Höfundur leitast í sjálfu sér ekki við að taka hlutlausa afstöðu, en þó er það von hans að ritsmíðin nýtist öðrum, meðal annars við fræðilega úrvinnslu.

Author Biography

Jón Sigurðsson

Fyrrv. iðnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins.

Published

2010-06-15

How to Cite

Sigurðsson, J. (2010). Kosningadagar 2007. Minningar - greining - mat - uppgjör . Icelandic Review of Politics & Administration, 6(1). https://doi.org/10.13177/irpa.b.2010.6.1.1

Issue

Section

Articles and speeches