Kosningar, almannaviljinn og almannaheill

Authors

  • Guðmundur Heiðar Frímannsson

DOI:

https://doi.org/10.13177/irpa.b.2005.1.1.2

Abstract

Á síðastliðnu ári kom út á íslensku bókin Samfélagssáttmálinn eftir franska átjándu aldar heimspekinginn Jean Jacques Rousseau (1712-1778)[1]. Eins og nafnið ber með sér fjallar höfundurinn um eina af máttugri hugmyndum í sögu nýaldar um að skilja beri mannlegt félag þannig að það sé reist á sáttmála. Hann tekur efnið frumlegum og umdeildum tökum og ekki alltaf ljóst hvernig á að skilja skoðanir hans og kenningar. Ég ætla ekki að fjalla með almennum hætti um grunnatriði þessarar bókar en ég vildi nota tímann til að draga fram eina rökfærslu eða eina hugmynd um útfærslu á samfélagsákvörðunum sem er að finna í þessari bók. Ég ætla að byrja að vitna til hennar á nokkrum stöðum og leitast síðan við að skýra hvað höfundurinn er að fara og varpa ljósi á af hverju samfélagsákvarðanir geta verið og ættu að vera skynsamlegar.

Author Biography

Guðmundur Heiðar Frímannsson

Prófessor.

Published

2005-12-15

How to Cite

Frímannsson, G. H. (2005). Kosningar, almannaviljinn og almannaheill. Icelandic Review of Politics & Administration, 1(1). https://doi.org/10.13177/irpa.b.2005.1.1.2

Issue

Section

Articles and speeches